Lekur verkfæragámurinn/skúrinn/kaffiskúrinn?

Ef vinnuskúrinn, verkfæraskúrinn/gámurinn eða kaffiskúrinn lekur á verkstað þá bjóðum við upp á einfalda lausn.
November 5, 2024
Deila frétt

Nú rignir hressilega og vindur með því og við þessar klassísku íslensku aðstæður þá eru eflaust margir iðnaðarmenn og verktakar að eiga við það hvimleiða vandamál að verkfæragámurinn eða skúrinn þeirra lekur. Við erum með einfalda lausn á þessu máli í Polyglass Elastoflex sjálflímandi tjörupappanum. Mjög þægileg lausn þar sem mjög einfalt og auðvelt er að leggja hann og engin þörf á því að bræða pappann á. Einfalt að skera pappann til og leggja yfir samskeyti til að stoppa leka og koma í veg fyrir leka í framtíðinni.

Elastoflex sjálflímandi er seldur bæði í heilum rúllum og í metravís. Kíktu á okkur á Drangahraun 4 og náðu þér í sjálflímandi tjörupappa til að laga lekann. Opið frá 7:30 - 17:00 alla virka daga og alltaf heitt á könnunni.